Ágætar fornmannasögur eru á þrykk út gengnar að forlagi herra vísilögmannsins Björns Markússonar. Þrykktar á Hólum í Hjaltadal af Halldóri Eiríkssyni anno MDCCLVI. Eftir því skrifaðar anno 1759 og 1760 af Sigurði Magnússyni.
„Þessar sögur hefur bókin inni að halda“
„Nokkur ljóðmæli, sem skulu sýna göfugleik ættar vorrar Íslendinga, hvörn fornaldarmanna æfi, og atgjörvis sögur, oss fyrir sjónir leiða, hvar til þær eru látnar á prent útganga“
„Hauk Fjölnis læt eg leika“
„7. feb. 1760 (4v)“
16 erindi
„Hér byrjast Kjalnesinga saga eður af Búa Andríðssyni“
„Enduð þann 12. janúarii anno 1760 af S[igurði] M[agnús]s[yni] (28v) “
„Hér byrjar þáttinn af Jökli syni Búa Andríðarsonar“
„Endaður þann 17. febrúarii anno 1759 á Vík í Lóni S[igurður] M[agnús]s[on] (36v) “
„Saga af Þorgrími prúða og Víglundi syni hans“
„Þáttur af Ölkofra“
„ Endað á Vík í Lóni þann 8. feb. 1759 af S[igurði] M[agnús]s[yni] (68r) “
„Sagan byrjast af Þórð hreðu“
„Endað þann 17. febrúarii anno 17[5]9 á Vík. S[igurður Magnússon]“
Þar fyrir aftan með annarri hendi: Endað á Vík í Lóni (100v)
„Hér byrjast lífsaga hins kynduga Króka-Refs hver eð inniheldur alla hans frægð og mannlega gjörninga, hagleik, visku og hróðrarsmíði, samsett af fróðum fræðimönnum“
Niðurlag vantar
„Hér byrjar sögu af Herrauð og Bósa Brimþvarasyni“
„Endað á Holtum þann 4. septembris 1773 af S[igurði] M[agnús]syni (143v) “
„Hér byrjast saga af Sigurði fót og Ásmundi Húnakóngi“
„ Endað á Holtum þann 8. septembris 1773 af S[igurði] M[agnús]syni (151r) “
Pappír
Vatnsmerki
Gömul blaðsíðumerking 1-48 (5r-28v), 1-16 (29r-36v), 1-50 (37r-61v), 1-13 (62r-68r), 16-64 (76r-100v), 1-38 (125r-143v), 1-15 (144r-151r)
Leifar af gamalli blaðsíðumerkingu 1-39 (101r-119r)
Auð innskotsblöð 123, 124 þar sem vantar í handrit
Límt yfir skrifflöt blaða 117, 119, 122r
Blöð 109-116 rangt inn bundin. Rétt röð: 109, 115, 111, 112, 113, 114, 110, 116Sigurður Magnússon í Holtum
Uppskrift eftir Ágætar fornmanna sögur Agiætar Fornmanna Sögur, Hoolum i Hialltadal : [s.n.], 1756
Úr safni Jón Árnason, bókavarðar
Eigandi handrits: Guðlaug Sigurðardóttir (143v)
3. bindi í 5 binda sagnasafni: JS 407 8vo - JS 411 8vo
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Athugað 1998
gömul viðgerð