Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 351 8vo

Ættir og ættrakning ; Ísland, 1755-1779

Titilsíða

Stutt og víðast skammtæk hungurvaka til vitundar stórgöfugra ættbálka er liggja að þeim hágöfugu höfðingshjónum, veleðla, háehruverðugum og hálærðum herra Gísla Magnússyni biskupi yfir Hólabiskupsdæmi og veleðla ehrugöfri og þjóðöllum dyggðum prýddri höfðingsmatrónu frú Ingibjörgu Sigurðardóttur hans hjartkæru hústrúr framlögð til nokkurs þægðar og þóknunar merkis af þeim ónefndum fátækling er þeim alls góðs unnir og árnar bæði þeim sjálfum og þeirra eðalgöfugu börnum, niðjum og kynsmönnum margfaldrar guðs blessunar, heilla, hefðar og hamingju árs og yndis æfilangt og eilíflega í Jesú nafni, og sá sami biður að þetta fáfróðlega verk virðist vel, og með vorkunnsemi lagfærist einkum í þeim stöðum sem skælst kann farið vera, hvað þó hvergi er orðið að vitund í ættartölunni en allra síst af ásetningi, af þeim er jafnan finnst þeirra háehruverðugum þénustu skyldugur Client. Proverb: 17 Corona senum filii filiorum et gloria filiorum patres eorum. Corona hinna öldruðu eru barnabörnin; og barnanna heidur er þeirra feður

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (2r-68r)
Ættir Gísla Magnússonar Hólabiskups og Ingibjargar Sigurðardóttur
Upphaf

Adam var inn fyrsti maður, af hans rifbeini gjörðist Eva …

Athugasemd

Án titils í handriti.

2 (69v-69v)
Ættrakning frá Guðmundi ríka til Jóns Arasonar biskups
Titill í handriti

Þetta frá Guðmundi ríka til biskups Jóns eftir mínum ættartölum

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír

Vatnsmerki

Blaðfjöldi
i + 69 + i blað (164 mm x 104 mm). Auð blöð: 15v, 59-60, 68v-69r
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 1-49 (2r-25v)

Skrifarar og skrift
Ein hönd ; Skrifari:

[síra Jón Helgason í Bjarnastaðagerði]

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Á fremra saurblaði 1 og fremra spjaldblaði er prentaður danskur texti.

Fyrirsögn á fremra saurblaði 1r: Extraordinarie Notification af 8 Decembr. 1747

Á aftara saurblaði 1 er prentaður danskur texti.

Á aftara spjaldblaði er prentaður texti á þýsku með yfirskriftinni Extraordinarie Notification vom 26. Januar 1748

Band

Skinnband

Fylgigögn
Í handritinu er einn laus seðill: Athugasemd um ætt síra Hallgríms Péturssonar Aðeins skrifað á rektósíðu.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland [1755-1779]

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Eiríkur Þormóðsson lagfærði 4. desember 2009Handritaskrá, 2. b. ; Sagnanet 15. júlí 1999
Viðgerðarsaga

Athugað 1999

Lýsigögn
×

Lýsigögn