„Manducus eður leikafæla, sem kemur og kallar í hópinn með ströffun, ávítan, áminningu, viðvörun og kenningu, þá verið er að halda gleði, dans, vikivaka, spil, tafl, holdlegan kveðskap og heiðinglega skemmtan.“
Þorsteinn Pétursson ,eiginhandarrit.
Skinnband
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.