Skráningarfærsla handrits

JS 52 8vo

Sálmakver ; Ísland, 1780

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
75 blöð (102 mm x 83 mm).
Skrifarar og skrift
Ein hönd að mestu ; Óþekktur skrifari.

Nótur
Í handritinu er brot úr sálmi með nótum:
  • Vakið upp, því oss vekur ein raust (byrjar um miðbik sálmsins við textann Brúðguminn ber) (11r)
Mynd af sálmalaginu er á vefnum Ísmús.
Band

Skinnhefti.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1780.
Ferill

Nöfn systranna Ingveldar Einarsdóttur og Sigríðar Einarsdóttur finnast aftarlega í handritinu.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 628.

Arnheiður Steinþórsdóttir bætti við skráninguna 9. júní 2020 ; Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 31. janúar 2019; Guðný Hrafnkelsdóttir frumskráði, 18. júní 2010; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2010.

Notaskrá

Höfundur: Páll Eggert Ólason
Titill: Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi
Titill: Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins
Ritstjóri / Útgefandi: Páll Eggert Ólason
Umfang: I-III
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Sálmakver

Lýsigögn