Skinnhefti.
Nöfn systranna Ingveldar Einarsdóttur og Sigríðar Einarsdóttur finnast aftarlega í handritinu.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 628.
Arnheiður Steinþórsdóttir bætti við skráninguna 9. júní 2020 ; Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 31. janúar 2019; Guðný Hrafnkelsdóttir frumskráði, 18. júní 2010; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2010.