„Rímur af Eberhard og Súlímu kveðnar af sáluga Guðbrandi Einarssyni árið 1769.“
Jón Sigurðsson fékk handritið 1858 frá Marteini Jónssyni, en áður hefur það verið í eigu Jóns Finnbogasonar á Arnhólsstöðum í Skriðdal.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.