Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 512 d 4to

Lítil frásaga um Tyrkjaránið í Vestmannaeyum frá 27da til 29da júlii 1627 ; Ísland, 10. september 1833

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-8r)
Lítil frásaga um Tyrkjaránið í Vestmannaeyum frá 27da til 29da júlii 1627
Vensl

Rask 30 4to.

Upphaf

Af upptökum þeirra ferðalags kann eg ekki grand með sannindum að skrifa; þó hafa nokkrir numið, þeir frá þeim sloppið hafa …

Skrifaraklausa

Þessa frásögu hefi ég undirskrifaður orðrétt afskrifað útúr sögubók hreppsstjóra Sygnor Þorsteins Gíslasonar á Grísará, nem ég hefi þarvið leyft mér: 1., að brúka líkann ritunarnmáta (orthographie) þeim, sem nú viðgengst, þó að vísu ekki öldungis eins. 2., að láta merkið: NB, á einstökum stöðum útá blaðaraðirnar (Marginerne), og hefi ég gjört það í því skyni, að lesendur eður útgefendur frásögunnar þarvið sjái, að óviðkunnanlegt orðfæri í henni hér og hvar, sem mér ekki alllítið vyrðist frábrugðið fagurt orðaðri og náttúrulegri íslensku, er ekki því að kenna, að ég hafi rángt afskrifað. En eptir eigin þótta leyfiði ég mér hvörgi að víkja orðaröð, taka orð úr eður bæta inní. 3., að ætlast til að þau d, sem úr er kastað gyldtu fyrir hið lina eður stúngna ð, þó skakkstrikið vanti; en hvar sá bókstafur er hardt framborinn, hefi ég brúkað hið standandi: d. Múnkaþverarklaustri, þann 10da Sept. 1833. Ari Sæmundsson. Administrator.(7v-8r)

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
8 blöð (212 mm x 170 mm). Auð blöð: 8v.
Tölusetning blaða
Gömul blaðsíðumerking 1-15 (1r-8r).
Umbrot

Einn dálkur.

Leturflötur er 180 mm x 135 mm.

Skrifarar og skrift
Ein hönd; Skrifari:

Ari Sæmundsson.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur
Á bl. 1r er skrifað með hendi Jóns Sigurðssonar: Sama og Rask 30 4to að nokkru leyti.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland, Munnkaþverárklaustur 10. september 1833.
Ferill
JS 512 4to hafði að geyma safn og minnisgreinir Jóns Sigurðssonar, lýtur einkum að ráni Tyrkja 1627 (enn fremur Spánverja 1615, ránsmönnum á Langanesi 1765 og í Færeyjum). Sumt í þessum böggli er frá Finni Magnússyni.
Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir frumskráði, 5. mars 2010 ; Handritaskrá, 3. b.
Lýsigögn
×

Lýsigögn