Viðbúnaður og minnisgreinar JS. lútandi að prentun byskupasagna bókmenntafélagsins. Að miklu leyti með hendi JS. Hér er að finna rit það um Jón byskup Arason, sem eignað er séra Arngrími Jónssyni á Mel (eftirrit frá 18. öld), og rit séra Eyjólfs Jónssonar á Völlum um Guðbrand byskup o. fl.
Pappír.
Óþekktir skrifarar
Óinnbundið.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Athugað fyrir myndatöku 21. janúar 2011. Forvarið og viðgert: júlí 2011.
Myndað í júlí 2011.
Myndað fyrir handritavef í júlí 2011.