Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

JS 341 4to

Vísnabók ; Ísland, 1765-1766

Titilsíða

Vísnabók sem inni hefur að halda ágæta sálma og listileg kvæði Guði til dýrðar sem á tuttugu árum hefur verið samsett og kveðið til andlegrar skemmtunar þeim í Guðsótta yðka vilja af þeim andríka og Guðhrædda kennimanni Séra Ólafi Jónssyni forðum sóknarpresti að Söndum við Dýrafjörð skrifuð enn að nýju Anno Christi 1765. (1r) Nú eftirfylgja nokkur kvæði út af Guðspjöllum og annars efnis. (24r) Annar partur þessarar vísnabókar sáluga Séra Ólafs Jónssonar. Innihaldandi mörg ágæt huggunarkvæði með öðrum fleiri kveðlingum. Sem og einni rímur af niðurbroti borgarinnar Jerusalem. Nú að nýju uppskrifaður Anno a Partu Virginis MDCCLXVI. (88r)

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Vísnabók
Notaskrá

Íslenskar gátur og skemmtanir, III.

Jón Þorkelsson: Digtningen, bls. 108, 126, 456, 458.

Páll Eggert Ólason: Menn og menntir, IV.

Athugasemd

Fyrra hluta hefur verið skeytt við (með því að í hefur vantað), og er hann með hendi Hjálmars Þorsteinssonar

Lýsing á handriti

Blaðfjöldi
153 blöð (198 mm x 158 mm).
Tölusetning blaða

Gömul blaðsíðumerking 59-312 (24r-151v).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 159-163 mm x 137-147 mm.
  • Leturflötur er afmarkaður á þrjá vegu með rauðum línum, við innri, ytri og efri spássíu.
  • Griporð.
  • Línufjöldi er 21-30.

Ástand
Handrit illa farið, laust í bandi.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur, ein hönd að mestu ; skrifarar:

I. (1r-23v): Hjálmar Þorsteinsson.

II. : (24r-153v): óþekktur skrifari.

Skreytingar

Blómateikning á blaði 87v; bláir, rauðir og grænir litir.

Skreytt titilsíða á blaði 1r, bláir og rauðir litir; blómaflúr; manneskja og upphafsstafirnir I.N.I.

Skreytt titilsíða á blaði 88r; rauðir, grænir og bláir litir; blómaflúr.

Textaflötur er innrammaður með rauðum línum að undantekinni neðri spássíu (sjá t.d. blöð 40r-42v).

Upphafsstafur með dýramyndum á blaði 122v; rauðir, bláir, grænir litir.

Flúraðir pennadregnir upphafsstafir mjög víða, sjá t.d. blöð 2r, 18r, 32r, 39v og 51r

Flúraðir og litaðir (bláir, rauðir, grænir) upphafsstafir, sjá blöð 119r, 120r, 121r-121v, 130r og 132r.

Flúraðir og litaðir (bláir, rauðir) upphafsstafir mjög víða, sjá t.d. blöð 41r, 60r, 70v, 89r og 105r.

Flúraðir og litaðir (svartir, rauðir) upphafsstafir mjög víða, sjá t.d. blöð 96r, 110v, 118r, 129r og 147v.

Flúraðir og litaðir (grænir, rauðir) upphafsstafir víða, sjá t.d. blöð , 77r og 81v.

Flúraðir einlitir (rauðir) upphafsstafir víða, sjá t.d. blöð 73r, 83v og 150v.

Skreytiborði á blöðum 37v, 45v, 46v, 49r og 58v.

Bókahnútar víða, sjá t.d. blöð: 25r, 87r, 105r og .

Flúr upp úr stöfum á blöðum 43r, 52r, 56v og 108r.

Band

Band frá ca. 1765-1817 (208 mm x 163 mm x 41 mm).

Tréspjöld kædd marmarapappír með leðurkili og hornum.

Slitið og laust í bandi.

Pappír í spjaldblöðum endurnýttur, sendibréf.

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland 1765-1766.
Ferill

Jón Sigurðsson hefur fengið handritið frá Ólafi E. Johnsen en í bindinu eru sendibréfabrot frá Magnúsi Stephensen til Jóns Sveinssonar á Stað í Steingrímsfirði og frá Geir Vídalín til Hjalta Jónssonar.

Aðföng

Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir yfirfór skráningu 11. ágúst 2016 ; Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skráði 8. - 14. nóvember 2011 ; Eva Kamilla Einarsdóttir frumskráði, 14. júní 2011 ; Handritaskrá, 2. b. ; Átaksverkefni 2011.

Notaskrá

Höfundur: Páll Eggert Ólason
Titill: Menn og menntir siðskiptaaldarinnar á Íslandi
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Vísnabók

Lýsigögn