Andleg gígja eður hljóðfæri af sálmum, vísum, rímum, kvæðum og dæmisögum, sum tekin, börnum sínum og náungum til fróðleiks, í Guðs orði, og annarrar nauðsynlegrar undirvísunar. Af föðurlegri ástsemi uppskrifuð og til æfiminningar eftirlátin af sr. Guðmundi Ellendssyni fyrrum staðhaldara að Felli í Sléttuhlíð. Ég vil lofsyngja drottni mína lífdaga og minn Guð lofa og svo lengi sem eg er. Endurskrifuð á Bjarnastöðum í Unadal af Skúla Guðmundssyni anno 1688.
„Andleg gígja eður hljóðfæri“
Einnig fáein kvæði aftast eftir síra Jón Guðmundsson í Felli. Endurskrifuð á Bjarnastöðum í Unadal af Skúla Guðmundssyni.
Skinnband með spennslum.
Svo virðist sem Einar Jónsson á Lundi í Fljótum hafi látið skrifa handritið til handa konu sinni, Guðnýju Hjálmarsdóttur (4r).
Jón Jónsson á Gauksstöðum hefur átt handritið 1853.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.