Skinnband með spennum.
Handritið hefur verið skrifað handa Magnúsi Jónssyni í Vigur, og er nafn hans (með hendi ritarans) á skjólblaði framan við.
Jón Sigurðsson fékk handritið 1860 frá síra Vernharði Þorkelssyni.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.