Með hendi Jóns Sigurðssonar eru fyrstu línurnar, en hitt uppskrift (með hendi Sigurðar Jónssonar, síðar sýslumanns), en erindisbrot að niðurlagi með hendi Vigfúsar Guttormssonar í Ási, og mun ritgerðin því vera eftir hann
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.