Pappír.
Einn dálkur.
Leturflötur er 20-193 mm x 130 mm. Auð blaðrönd utan leturflatar
Aðeins skrifað á rektósíður nema 16, 21, 38-40, 57, 59, 70, 82, 106, 114, 116, 118-122, 127-130, 132, 135, 161, 166-167, 170, 173, 177, 188, 203-204, 206, 208, 218, 221, 228, 244-245, 253, 257, 266, 268 og 275.Jón Sigurðsson, sprettskrift.
Pappakápa með skinn á kili og hornum. Gylling og rauður litur á kili.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.