Blöð (prentuð) og úrklippur úr blöðum, varðandi Ísland og íslensk efni. Fremst í handritinu stendur: „Inn í þessari bók voru aðeins lausar úrklippur sem nú hafa verið lagðar í kassa!“. Allar blaðsíður bókarinnar eru auðar. 3 bögglar, eru undir þremur safnmörkum, JS. 167 - 169 fol.
Úrklippurnar hafa verið færðar úr bók og yfir í kassa.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 2. bindi, bls. 489.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 24. maí 2019.