2 hlutar (I-II).
Handrit Jóns Sigurðssonar að Laxdæla sögu með orðamun og athugasemdum. Unnið fyrir Det Norske Oldskriftselskab en kom aldrei út. Sbr. Páll Eggert Ólason, Jón Sigurðsson V. bindi, bls. 308.
Pappír.
Handritið blaðmerkt fyrir myndatöku.
I. 1v-184v. Jón Sigurðsson, sprettskrift.
II. 185r-212v. Óþekktur skrifari, sprettskrift.
Band frá árunum 1908-1942 (370 mm x 245 mm x 32 mm).
Bókaspjöld úr pappa klædd svörtum striga. Kjölur klæddur brúnu skinni, pergament á hornum. Gylling á kili og rauður undirlitur þar sem titill er.Slitið band.
Runólfur Guðjónsson batt.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.
Athugað 1998
„Laxdæla saga“
Handritið er eftirrit Jóns Sigurðssonar af Möðruvallabók AM 132 fol.
„Ketill flatnefur hét maður …“
„… Þorkell Gellisson var hið mesta nýtmenni og var sagður manna fróðastur. “
Handrit Jóns Sigurðssonar að Laxdæla sögu með orðamun og athugasemdum. Unnið fyrir Det Norske Oldskriftselskab en kom aldrei út. Sbr. Páll Eggert Ólason, Jón Sigurðsson V. bindi, bls. 308.
„Af Bolla Bollasyni“
„Í þann tíma er Bolli Bollason bjó í Tungu …“
„… og höfum vér ei heyrt þá sögu lengri. “
„Þetta sem eftir er sögunnar er einungis í sumum handritaflokkunum, hinum yngri ... og er venjulega kallaður "Bolla þáttur" (171r)“
Bolla þáttur kemur í beinu framhaldi af Laxdæla sögu.
Pappír.
Upphafleg blaðsíðumerking 2-362 (1r-184v).
Hvert tvinn merkt (samtals eru þau 92) (1r-183r).
Eindálka.
Leturflötur er 175 mm x 115 mm.
Línufjöldi er 23.
Leturflötur afmarkaður með broti í blaði.
Blöð 79 og 80 eru laus.
Jón Sigurðsson, sprettskrift.
Spássíugreinar allvíða.
Á aftari saurblöðum (i-vi) eru 83 fastir seðlar með athugasemdum Jóns Sigurðssonar við Laxdæla sögu.
Seðlarnir eru af ýmsum stærðum og pappír mismunandi.
„Chronologia yfir Grettis sögu. Auth. Þormóður Torfason“
Uppskrift úr Lbs 127 4to.
„Önnur Chronologia eftir Exemplari sr. Vigfúsar Jónssonar í Hítardal“
Uppskrift úr Lbs 127 4to.
„Chronologia yfir Eyrbyggju. Author prófessor Árni Magnússon“
Uppskrift úr Lbs 127 4to.
„Önnur Chronologia yfir Eyrbyggju. Sr. Vigfús Jónsson“
Uppskrift úr Lbs 127 4to.
Pappír.
Gömul blaðsíðumerking 1-53 (185r-212r).
Eindálka.
Leturflötur er 185 mm x 140 mm.
Línufjöldi er 25.
Leturflötur afmarkaður með broti í blaði.
Óþekktur skrifari, sprettskrift.