Aftan við liggur bréf til Jóns Sigurðssonar frá Fr. Meidell ásamt skrá með sömu hönd um villur í Nýrri jarðabók fyrir Ísland frá 1861.
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal , bindistitill.
Alþingi keypti handrita- og bókasafn Jóns Sigurðssonar árið 1878. Safnið var afhent Landsbókasafni að honum látnum, en hann lést 7. desember 1879. Það komst í hendur safnsins árið 1881 er það var flutt í Alþingishúsið.