Pappír
Band frá því um 1838 (209 mm x 174 mm x 27 mm).
Skinnband, tréspjöld klædd blindþrykktu skinni úr eldra bandi. Saumað á utanáliggjandi bönd. Rauðlitað.Snið blálituð.
Límmiðar á fremra spjaldi og kili.
Fremra spjaldblað er laust frá að hluta, skrifað á innri hlið, reikningsyfirlit.
Aftara spjald- og saurblað er sama örkin, reikningsyfirlit frá 1769.
Spjöld fóðruð með skrifuðum og prentuðum pappír.
Fremra saurblað 1r er prentaður reikningur Fornfræðafélagsins frá 1830.
Einn laus miði liggur aftast í handriti.
Guðmundur Einarsson sýsluskrifari, gaf Reykjavíkurdeild Hins íslenska bókmenntafélags 1865.
Áður ÍBR. A. 18-26 og 28-39.
Landsbókasafn keypti handritasafn Reykjavíkurdeildar Hins íslenska bókmenntafélags 1901.