Pappír.
Skinnheft.
ÍB 878-980 8vo er komið til Bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895-1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Nafn í handriti: Sigríður (á spjaldblaði sem hefur verið losað úr bandi). Einnig er þar bæjarheitið Ljárskógar.
Úr bandi liggur með handritinu bréf frá Þórunni Egilsdóttur til sonar síns, Sigurðar Sigurðssonar á Dunki, Dalasýslu. Einnig er bréf frá Sigurði til bróður síns.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 195.
Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 3. nóvember 2016.