„Þetta tímatals registur hefur samantekið Mr. D: Níelsson gr: og nú uppskrifað, samt nokkuð afbakað, eftir hans eiginhandarriti árið 1838. Af þeim sem einungis ætlar blöð þessi sjálfum sér og heitir Fimbulfambi.“
Aftast er viðauki með frásögu úr Kötlugosinu 1755 og um náttúruundur frá 1754 tekið úr Reisubók Bjarna og Eggerts. Þar á eftir fylgir texti um Elísabetu I Englandsdrottningu.
Á saurblað hefur verið skrifað: „Árbók 861-1800. Daði ,,fróði"“.
Aftast stendur: „F. Jónsson Hálfstúdent 8.2.19.“
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 193.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 17. september 2018.