Í handritinu eru meðal annars Vikusálmar, Bæn fyrir sacramentis meðtekning, Andvarpan út af Christi pínu og andláts orðum, Erfikvæði og Tímaspegill Árna Þorkelsonar frá 1767.
Pappír.
Skinnband.
ÍB 878 - 980 8vo er komið til bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895 - 1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Halldór Pálsson á Ásbjarnarstöðum fékk handritið frá Guðnabakka 1844.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 191.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 4. september 2018.