Pappír.
Skinnband.
ÍB 878-980 8vo er komið til Bókmenntafélagsins smám saman á árunum 1895-1912 frá Jóni Borgfirðingi.
Árni Þorbjörnsson átti handritið 1755, en talið er að Þorbjörn faðir hans hafi skrifað það.
Guðrún Árnadóttir átti handritið 1775.
Guðrún Jóhannesdóttir átti kverið 1852 (?).
Guðný Konráðsdóttir skrifar eigendayfirlýsingu í handritið.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 189.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir bætti við skráninguna 3. janúar 2019; Halldóra Kristinsdóttir frumskráði, 1. nóvember 2016.