„Rímur af Hænsa Þórer orktar: Fyrri parturinn af Sveini Sál Lögmanni Sölvasyni á Munkaþverá en síðari hlutinn af Séra Jóni sál. Þorlákssyni á Bægisá.“
„Negla vil ég norðra knör, af naumum efnum saman …“
9 rímur.
Pappír.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 171.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 24. apríl 2018.