„Sagan af Ambales eður Amlóða“
„Donrek hét kongur er réði fyrir Spania Hispania …“
„Söguna af Ambales kongi eður öðru nafni Amlóða. Fynes.“
Pappír.
Handritið hefur verið blaðmerkt með blýanti 1r-84r.
Skrifari óþekktur.
Fremst í handritinu liggur miði sem á stendur „ÍB 700 8vo 2 skinnblöð, brot úr latneskri messusöngsbók liggja með skinnbrotum safnsins 20/6 1972. V.Ól.“. Þau hafa nú fengið safnmarkið Lbs Fragm 91.
Skinnband. Handritið liggur laust í skinnbandi. Á kilinum stendur„Franckens Hand-Postill“.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 156.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 13. október 2017.