1. og 2. bók
Pappír.
Skinnbindi
Á fremsta blaði stendur: „Þetta kver á ég undirskrifaður en enginn annar Benedikt Grímsson…“ litlu neðar er skrifað nafnið Guðmundur Benediktsson.
ÍB 182-187 8vo frá Marteini Jónssyni gullsmið,1860.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).
Skráning Páls Eggerts Ólasonar á handritinu er aðgengileg í ritinu Skrá um handritasöfn Landsbókasafnsins, 3. bindi, bls. 45.
Guðrún Laufey Guðmundsdóttir frumskráði, 30. október 2018.