Skráningarfærsla handrits

ÍB 95 8vo

Predikanir ; Ísland, 1640-1642

Tungumál textans
íslenska

Innihald

Predikanir
Athugasemd

Píslarpredikanir 6, vantar framan af, ræða um greftran Krists og önnur um pínu hans, líkræður 4 eftir Matthias Hoe, vantar framan af, hjónavígsluræða eftir Niels Hemmingsen

Allar útlagðar af síra Einari Jónssyni að Skriðuklaustri, síðar að Ási í Fellum, en í miðri bók (bl. 89-113) eru sjöorðapredikanir með annarri hendi nokkru síðar á 17. öld

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

Blaðfjöldi
162 blöð (153 mm x 95 mm).
Skrifarar og skrift
Tvær hendur ; Skrifarar:

Einar Jónsson

Óþekktur skrifari

Band

Skinnband

Uppruni og ferill

Uppruni
Ísland (að mestu) 1640-1642.
Ferill

Frá Jóni Sigurðssyni í Njarðvík 1858, og hefir hann rakið svo sögu handritsins á blaði, er með liggur, að síra Bjarni í Ási hafi fengið þær eftir síra Einar, föður sinn, en síðan Guðrún, dóttir síra Bjarna, er átti síra Jón Oddsson á Hjaltastöðum í Útmannasveit, en síra Jón Brynjólfsson á Eiðum eignaðist þær síðan, afi Jóns í Njarðvík, og gaf þær Sigurði, föður hans.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill
Halldóra Kristinsdóttir yfirfór skráningu, 5. júlí 2012 ; Íris Alda Ísleifsdóttir frumskráði, 25. júlí 2011 ; Handritaskrá, 3. b. ; Átaksverkefni 2011.
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Predikanir

Lýsigögn