Ættartölusyrpa með hendi Páls Pálssonar stúdents, Jóns Espólíns (ættartala síra Stefáns Þorvaldssonar, def. aftan), síra Jóns Eyjólfssonar á Söndum (ætt síra Jóns Steingrímssonar í Hruna), síra Helga Sigurðssonar á Melum (ætt hans sjálfs), o.fl. Hér eru og ættartölur Hannesar Erlendssonar skósmiðs í Reykjavík (eftir Ólaf Snóksdalín, uppskrift), Kristínar Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð (konu síra Þorvalds Böðvarssonar), Sæmundar Ögmundssonar í Eyvindarholti.
Pappír.
ÍB 343-344 4to frá frú Hólmfríði Þorvaldsdóttur í Reykjavík.
Landsbókasafn keypti árið 1901 handritasafn Hins íslenska bókmenntafélags, Kaupmannahafnardeildar (ÍB) og Reykjavíkurdeildar (ÍBR).