Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

GKS 3268 4to

Jónsbók ; Ísland, 1340-1360

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-98v)
Jónsbók
Titill í handriti

Bréf

Vensl

Sama hönd er á fyrri hluta þessa handrits og GKS 3270 4to, AM 420 a 4to, og sumum vísunum í Egils sögu Möðruvallabókar.

Upphaf

Magnús meður Guðs miskunn Noregs konungur …

Niðurlag

… og um öll iv marka …

Athugasemd

Vantar aftan af, endar í 21. kafla Þjófabálks.

Milli bl. 92-93 er einnig eyða. Bl. 92 endar í 12. kafla Farmannalaga: nema hann vilji á byr. Bl. 93 hefst í 25. kafla Farmannalaga: d[rag]a skipinu til fiskjar.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
ii + 98 + ii blöð (235-240 mm x 195-198 mm). Stærðarmál verður að taka með fyrirvara því að blöðin hafa verið skorin við kjöl.
Tölusetning blaða
Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar með bleki, pag. 1-196, efst í hægra horni.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 160-171 mm x 142-145 mm.
  • Línufjöldi er að jafnaði 20 línur. Undir lok handritsins getur hann þó farið upp í 24 línur.
  • Markað er fyrir dálkum og línum með hnífsoddi og sér þess merki á útspássíum á um helmingi kveranna. Frá bl. 11og að bl. 35 er markað með oddi, en eftir það með um 2 mm láréttum línum, nema á bl. 37-41 eru þær lóðréttar. Á bl. 85r-87r er dregið fyrir línum með blýi.

Ástand
Handritið var mjög illa farið og hefur verið skorið af öllum blöðum langsum við kjöl og búinn til nýr sambrotsfals/kjalfals úr pappír. Texti hefur þó ekki skerst við það.
Skrifarar og skrift
Tvær hendur.

I. bl. 1r-38r: Óþekktur skrifari, textaskrift.

II. bl. 38v-98v: Óþekktur skrifari, textaskrift.

Skreytingar

Handritið er allt lýst með litdregnum upphafsstöfum. Sams konar upphafsstafi er að finna í öðru Jónsbókarhandriti frá sama tíma og með sömu hendi, GKS 3270 4to, og mjög svipaðir upphafsstafir eru einnig í Stjórnarhandritinu AM 226 fol. og Flateyjarbók, GKS 1005 fol., sem Magnús Þórhallsson lýsti (sbr. Guðbjörg Kristjánsdóttir 1993 , bls. 25-26).

Stór sögustafur í mynd dreka er á einum stað:

  • Bl. 2v: F (6 inndregnar línur) í upphafi Þingfararbálks.
Stafur með sama sniði er á bl. 26r í GKS 3270 4to.

Upphafsstafir skreyttir með pennaflúri (3-5 inndregnar línur) og margir með myndum af dýrum og kynjaskepnum ýmis konar og/eða laufteinungsskrauti, eru í upphafi annarra bálka:

  • Bl. 1r: M (4 línur) í upphafi bréfs Magnúsar konungs.
  • Bl. 7v: Þ (5 línur) í upphafi Kristindómsbálks.
  • Bl. 12v: J (meðfram leturfleti) í upphafi Konungs þegnskyldu.
  • Bl. 13v: Þ (5 línur) í upphafi Mannhelgi.
  • Bl. 27r: F (5 línur) í upphafi Kvennagiftinga.
  • Bl. 30r: S (4 línur) í upphafi Erfðabálks.
  • Bl. 37v: H (4 línur) í upphafi Framfærslubálks.
  • Bl. 43v: H (4 línur) í upphafi Landabrigðabálks.
  • Bl. 48r: E (4 línur) í upphafi Landsleigubálks.
  • Bl. 73v: H (3 línur) í upphafi Rekabálks.
  • Bl. 79v: Þ (4 línur) í upphafi Kaupabálks.
  • Bl. 87v: S (3 línur) í upphafi Farmannalaga.
  • Bl. 94r: Þ (4 línur) í upphafi Þjófabálks.
Þrír til fjórir litir eru notaðir (rauður, rauðbrúnn, grænn og/eða gráblár) og einkennandi er að stafirnir sjálfir eru tvílitir, flestir með eins konar innlagðri skreytingu eða mynstri.

Minni pennaflúraðir upphafsstafir (yfirleitt 2 inndregnar línur), einlitir með flúri í öðrum lit, eru í upphafi kafla. Flúrið er víða mjög máð.

Rauðritaðar fyrirsagnir eru alls staðar við upphaf bálka og kafla.

Línufyllingar í rauðum lit eru gjarnan aftan við rauðritaðar fyrirsagnir.

Víða er strikað eða dregið með rauðum lit í stafi og orð til áherslu.

Rauður litur hefur verið borinn á blaðkanta eftir að skorið var af þeim við band.

Nótur

Nótur á neðri spássíum á bl. 85v-86r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á 17. öld var síðutitlum bætt við á blöðum 1r-42r, 73v-74r, 75v-76r, 94v, en einnig með tveimur til þremur höndum á blöðum 43v-73r, 80r-81v, 98r-v og e.t.v. víðar, en skriftin er þar mjög máð. Á sama tíma var rómverskum kaflanúmerum, og sumstaðar arabískum, bætt við á spássíur, einkum í fyrri hluta handritsins.
  • Á aftara pappírssaurblað fremst hefur Jón Eiríksson konferensráð skráð upplýsingar um aldur textans og uppruna, en einnig er hér athugasemd um feril handritsins.

    Á neðri hluta bl. 98v hefur Jón Eiríksson skrifað athugasemd um það hversu mikið vantar í handritið.

Spássíugreinar:

Band

Band frá því í september 1980 (252 mm x 223 mm x 48 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Ljósbrúnt geitarskinn á kili og hornum Saumað á móttök. Ný saurblöð fremst og aftast, innan við þau eru eldri saurblöð.

Blöð voru fjarlægð úr gömlu bandi og eru nú varðveitt í Acc 48k og Acc 48 l.

Fylgigögn

Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1350 (sbr. Stefán Karlsson 1967:27 ), en Kålund tímasetti til ca 1300 ( Katalog over de oldnorsk-islandske håndskrifter 1900:69 ).

Ferill

Björn Jónsson gyllir átti handritið á 14. öld, en hann fékk það frá móðurbróður sínum Jóni Sveinssyni Hvammi er bjó í Hvammi í Hvammssveit (hann dó 1355) (sjá bl. 91v). Árið 1774 barst það síðan til Kaupmannahafnar (sjá aftara saurblað fremst). Det kongelige bibliotek keypti handritið á uppboði hjá bókaverslun Hegelunds árið 1786.

Á spássíum á bl. 46v og 49v er nafnið Magnús (Árnason).

Á spássíu á bl. 57v er nafnið Sigríður (Sigurðardóttir?).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 5. desember 1980.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1980. Eldra band fylgir í öskju sem nú er orðin handritinu of lítil.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í júní 1977.

Notaskrá

Höfundur: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Titill: Some heroic motifs in Icelandic art, Scripta Islandica
Umfang: 68
Höfundur: Jacobsen, Bent Chr.
Titill: Om lovbøgernes kristendomsbalk og indledningskapitlerne i de yngre kristenretter,
Umfang: s. 77-88
Höfundur: Magerøy, Ellen Marie
Titill: , Islandsk hornskurd. Drikkehorn fra før "brennevinstiden"
Umfang: Supplementum 7
Titill: , Egils saga Skallagrímssonar. Bind I. A-redaktionen
Ritstjóri / Útgefandi: Bjarni Einarsson
Umfang: 19
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Palæografi. B. Norge og Island, Nordisk kultur
Umfang: 28:B
Höfundur: Rode, Eva
Titill: , Et fragment af en prædiken til askeonsdag
Umfang: s. 44-61
Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Dynskógar, Heimildir í handritum um klaustrin í Skaftafellsþingi
Umfang: 7
Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Sýnisbók íslenskrar skriftar
Höfundur: Guðrún Þórhallsdóttir
Titill: Tvíræða orðasambandið að ósekju, Orð og tunga
Umfang: 18
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: , Icelandic illuminated manuscripts of the middle ages
Umfang: 7
Höfundur: Halldór Hermannsson
Titill: Illuminated manuscripts of the Jónsbók, Islandica
Umfang: 28
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Chesnutt, Michael
Titill: On the structure, format, and preservation of Möðruvallabók, Gripla
Umfang: 21
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sagas of Icelandic bishops. Fragments of eight manuscripts, Introduction
Umfang: s. 9-61
Lýsigögn
×
Efni skjals
×
  1. Jónsbók

Lýsigögn