Band frá miðri eða seinni hluta 18. aldar (172 mm x 103 mm x 30 mm). Kver saumuð með þremur hamptaumum sem festir eru í tréspjöld klæddum bókfelli með blindþrykktu blóma- og rammamunstri.
Slitur úr sendibréfi límt innan á fremra kápublað. Saurblað fremst er slitur úr öðru sendibréfi.
Göt framan á kápu og kili. Innábrot klæðningar hefur losnað að ofan.
Lagfærði 9. desember 2016.
„Speculum Patientiæ. Þolinmæðinnar spegill samantekinn af hálærðum kennimanni sr. Páli Björnssyni að Selárdal, prófasti í Barðastrandarsýslu.“
Verkið er í þremur hlutum: I: Um þolinmæðina (3r-52r (1r-50r)). II: Annar partur. Um hugarins kyrrð, eður Tranqvilitatem Animi (52r-67r (50r-65r)). II: Þriðji þáttur. Um sinnisins nægju 67v-89r (65v-87r)).
„Mikils lofs verðugum mönnum virðuglegum og hávísum …“
„… og allrar me[stu] prýði.“
Ritið er tileinkað bræðrunum Sigurði Björnssyni lögmanni sunnan og austan og séra Hannesi Björnssyni í Saurbæ. Undir stendur með ljósara bleki og hugsanlega annarri hendi: Indigo valete par virtutum! Selárdal Anno 1687, 12. februarii. Ykkar þénari. Undirskrifað nafn Páll Björnsson.
„Appendix: Svo blaðið væri ekki autt. Margir skikka sér ei vel í meðlætisnægðinni.“
„Ei var ásetningur minn að skrifa hvörnin ein kristin sál …“
„… en behalda henni meðan hún er.“
„Registur bókarinnar.“
Þrettán kver.
I. 1r-90v: óþekktur skrifari, fljótaskrift. Smápóstar þó með annarri hendi á blöðum 7v-8r, 9v, 23r-v, 85v.
II. 91r-92v: óþekktur skrifari (e.t.v. sami og að ofan), blendingsskrift.
Upphafsstafir kafla pennaflúraðir (sjá til dæmis bl. 1r, 3r, 22v, 27r, 48r, 49r, 52r, 56r, 67v, 78v, 79v, 87v).
Fyrirsagnir eru með stærri stöfum og oft með pennaflúruðum upphafsstaf.
Dálítill skrautbekkur neðst á bl. 67r.
Margt úr forngrískum og rómverskum sögnum og goðsögum. Sumar sögurnar enda á spakmælum eða orðskviðum.
„1. Papyri eins ungs rómversks ráðherrasonar snilld og þagmælska.“
„Aulus Pellíus hefur útdregið eina fallega historíu af M. Catonis ræðum …“
„… sem Hóratíus segir: Est et fidelituta silentio merces.“
Sagan fjallar um gagnsemi þagmælskunnar.
„2. Ein af þeim gömlu Sybillis býður Tarqvinio drambsama bækur til kaups.“
„Það finnst skrifað í gömlum Rómverja historíum …“
„… sem þeir vildu fegnir síðar dýru verði kaupa.“
„3. Alexanders mikla samtal við nokkra misindamenn, í hverju hann við þá fram setur nokkur þung spursmál.“
„Þegar Alexander mikli var innkominn í Indíaland …“
„… en verður sjálfur fangaður í sínu eigin neti.“
Hér á eftir vantar þrjár sögur og hefur trúlega vantað í forrit handritsins. Undir stendur með hendi skrifara: Hér vantar í frá 3ju til 7du Hist.
„7. Heimsins sjö gömlu furðuverk.“
„Þeim sjö heimsins gömlu verkum er hrósað fram yfir allar gjörðir manna …“
„… svo að ei sést nú hvar þessir staðir staðið hafi.“
„8. Eitt dilemma eður vandasamur ágreiningur millum eins skólameistara og hans lærisveins, sem sýndist að vera óúrráðanlegur. Prov.: Mali corvi mali ovum. Illt má af illum hljótast.“
„Sá veltalandi mælskumaður og heimspekingur Protagoras …“
„… þeim þótti það ómögulegt.“
„Aristomenis þess messeníska hraustlegt líf og endalykt, hvörs hjarta var loðið.“
„Pausanías segir í sínum Messeniacis frá einni sérdeilis historíu …“
„… sem annað mannshöfuð.“
Hér á eftir vantar sögu 10 og upphaf sögu 11.
„… og gljáði á andlit hennar sem fita hefði verið á borin“
„… hann var haldinn að vera líkur guðunum.“
„12. Dæmi til að draumar séu ei aldeilis forsmáandi.“
„Cicero og Valeríus Maximus segja svo …“
„ …að draumur hans hafði ei að honum logið.“
„13. Polycrates mikla lukka.“
„Í Samo voru forðum þrír bræður af ypparlegum ættum …“
„… svo hann var þá af sólunni smurður.“
„14. Mutii Scævolæ manndómsstrik.“
„Forðum daga var í Róm einn eðalmaður að nafni Cajus Mutíus …“
„… var Mutíus kallaður Scævus eða Lævus, það er örvhenti.“
„15. Horatii Coclitis hreystiverk.“
„Þegar Heruscar stríddu á staðinn Róm …“
„… sem vara mun svo lengi heimurinn stendur.“
„16. Margir hafa dáið af gleði.“
„Hjá Aulo Gellío má lesa að á eyjunni Rhodo …“
„… að hún strax féll dauð til jarðar niður.“
„17. Bucephal Alexandri reiðhestur“
„Philonicus sem var fæddur í Thessalía hefur boðið Philippo …“
„… hefur og staðurinn Buszow Bucephalæ sitt nafn.“
„18. Neró keisari og hans illvirki.“
„Neró keisari var 17 vetra er hann til veldis kom …“
„… undir hans veldi skeði sú fyrsta ofsókn kristinna manna.“
„19. Þess lærða Díogenis líf og athæfi.“
„Díogenes hefur að sönnu verið einn nafnkenndur heimspekingur …“
„… hætta að renna mitt skeið og veðhlaup.“
Sagan er í 27 númeruðum hlutum.
„20. Hvörnin Heliogabalus bjó sig til síns dauða.“
„Þeim ógnarlega týranna Heliogalo var spáð því af einum presti …“
„… soddan endalykt sómdi vel svo bölvuðum týranna.“
„21. Milo og Titormus, tvö hraustmenni“
„Milo Crotoniates hefur verið einn sterkur maður …“
„… heldur varð þar af úlfunum lifandi upp étinn.“
„22. Antonii og Kleópatræ dýrmæta máltíð.“
„Kleópatra drottning í Egyptalandi brúkaði …“
„… en L. Panctus frelsaði það annað.“
„23. Um eiturhindrarana Psyllos, sem og Antonii og Kleópatræ dauða.“
„Pliníus skrifar um einslags fólk er hann kallar Psyllis …“
„… svo hún féll þar strax dauð niður úr höndum þeim.“
„24. Labyrintus, sem og Thesei og Ariadnes historía.“
„Dædalus hefur verið mikið uppáfinningasamur smiður …“
„… að komast úr hættu eður vanda nokkrum.“
„25. Nokkrar ýmislegar manneskjur.“
„Aulus Gellíus fortelur af þeim gömlu skrifurum …“
„… hvar um Virgilíus skáld skrifar.“
„26. Tryggð milli Androdum og eins ljóns“
„Í gamla daga var brúkunlegt hjá Rómverjum …“
„… sem fylgispakur rakki alla hans lífdaga.“
„27. Kvinnu Intaphernis eftirtektarverður gjörningur.“
„Heródotus skrifar að í höllu Darii …“
„… hitt allt lét hann af lífi taka.“
„28. Psammetichus vill til reyna hvört að sé hið ellefta tungumál.“
„Í kóngs Psammetichi tíð var mikil þráttan millum egypskra …“
„… smám saman í voru hugskoti að læra það og nema.“
„29. Um Seostrum og hans son Pheronem.“
„Seostris hefur verið kóngur í Egyptalandi …“
„… en þá sem honum að lækning varð tók hann sér til drottn(ingar) aftur.“
„30. Undarlegur þjófnaður á dögum Rhampsiniti kóngs.“
„Heródotus segir frá einni skrýtilegri historíu um einn sniðugan þjófnað …“
„… og setti hann til kóngs eftir sig.“
„31. Syloson gefur Dario kóngi purpurakápu.“
„Hér að framan er frá sagt að sá lánsami Polycrates …“
„… og setti síðan sinn vin Syloson sem kóng þar yfir.“
„32. Nokkra kónga og týranna fljótu og sniðugu stríðslistir.“
„Tarqviníus Superbus hefur verið einn af þeim dramblátu og ógnarlegustu kóngum …“
„… innbyggjurum Kórintuborgar.“
„33. Vegna tryggðar og hreysti Zopyri inntók Daríus Babýlon.“
„Borgin Babýlon var umsetin af Daríó kóngi …“
„… varð sú mikla Babýlon unnin af Daríó fyrir tilstyrk Zopyri.“
„34. Psammeniti stöðugleiki í mótlætinu.“
„Þegar Cambyses kóngur í Persía …“
„… og elskaði hann meðan hann lifði.“
„35. Gygis hringur með sinn undarlega kraft.“
„Plató heimspekingur skrifar í sinni annarri bók …“
„… Gygishring sem vel lukkast eitt eður annað.“
„36. Aðskiljanlegt stand og setningar þeirra gömlu heimspekinga.“
„Á meðal allra stétta og trúarbragða …“
„… þeir eru og kallaðir Epicuri degrege porci. ɔ: Epicuri af hjörð svínsins.“
„37. Heimsins fjögur einvaldsdæmi.“
„Monarchía eður einvaldsdæmi er kallað soddan ein stjórnan …“
„… hefur verið Cajus Julíus Cæsar.“
„38. Eftirdæmi sannrar og staðfastrar elsku milli Damonem og Pythiam.“
„Hvað sannur og staðfastur vinskapur kunni að orka …“
„stallbræðra skap og ófalsaða vináttu.“
„39. Tveggja bræðra elska og tryggð við sitt föðurland.“
„Eftirfylgjandi historíu skrifar Val(eríus) Max(imus) í sinni 5tu bók“
„… þessara bræðra hrós og lofstír lifir enn nú þann dag í dag er.“
„40. Hvörnin sú nýja veröld eður Vest-Indíen eru fyrst fundin af Columbo.“
„Allur sá kringlótti jarðarhnöttur er samsettur af vatni og jörðu …“
„… síðan hafa menn reist þangað árlega með miklum ábata.“
„41. Nokkuð af lögum Gyðinga í gestaboðum.“
„Rómverjar eru lofsverðir fyrir það að þeir voru svo vandir að siðum í gestaboðum sínum …“
„… lengur en til kvelds.“
„42. Ýmsra meiningar um það hvar í fólgið sé það æðsta góða.“
„Þeir heiðnu spekingar hafa haft aðskiljanlegar meiningar þar um …“
„… þar í fólgna sína æðstu lukku og velgengni.“
„43. Hyllitrésins undarlegi kraftur“
„Michael Neander getur í sinni Physica eftirfylgjandi historíu …“
„… og fór hann svo með þeim til síns aðsetursstaðar.“
„44. Um þá konstríku meistara Stasicrates og Archimedem.“
„Hephæstio var einn af þeim bestu vinum Alexanders mikla …“
„… því hann virti lítils þessa list.“
„45. Aðskiljanlegur máti á greftran þeirra dauðu.“
„Það finnst að hinir lifendu hafi með ferns slag greftrað þá dauðu …“
„… legstað fengið, en í sínum sauruga maga.“
„46. Um Naphta“
„Naphta er einslags fita af olíu …“
„… hvar um lesa má hjá Plutarcho í ævisögu Alexanders mikla.“
„47. Spádómar teknir af fuglakvaki og flugi.“
„Bæði þeir latínsku og grísku hafa í fyrndinni gefið miklar gætur að kvaki fuglanna …“
„… og óttast hann mundi með pílu til dauðs skjóta sig.“
„48. Um það stóra platoníska ár.“
„Stjörnumeistarar hafa uppáfundið margslags ár …“
„… Hér sannast málsháttur er svo hljóðar: Slægur etur slægs mat.“
„49. Eftirdæmi uppá réttlátt fólk.“
„Þegar Alexander Magnus hélt áfram her sínum …“
„… né sól skína yfir það fólk sem ei elskar réttlætið.“
„50. Selevci og Cambysis dóma réttlætis“
„Á meðal annarra ágætra regla og réttarbóta …“
„… með þá helgu justictiam og dóma réttlæti.“
„51. Sjö Grikklands spekingar.“
„Forðum daga voru í Grikklandi 7 vísindamenn …“
„… hvar hans bein liggja.“
Í sjö stuttum köflum undir nafni hvers spekings um sig.
„52. Skröksaga um Narcissum.“
„Skáldið Ovidíus segir í þeirri sinni bók …“
„… ber hans nafn og kallast Rósir Narcissi.“
„53. Lukkunnar hjól.“
„Þeir gömlu heiðingjar héldu lukkuna að vera eina gyðju …“
„… að lukkan má aldrei staðföst eður kyrr standa í nokkrum stað.“
„54. Þess heimska unglings Phaetons beiðni og hrapalegt fall.“
„Phaeton var sem skáldin dikta …“
„… og uppljóma veröldina með sínu fagra ljósi.“
„55. Um leika og glímur grískra.“
„Þegar Grikkland var enn nú í sínum blóma …“
„… Þessi herför gekk Xerxi illa og ólánlega út.“
„56. Það eðla laurberjatré.“
„Laurberjatréð er eitt slags af þeim trjám sem eru græn …“
„… Apolló hefur verið þessara þriggja sérlegasti guð í fyrndinni.“
„57. Tóbak.“
„Tóbaksjurtin hefur sitt nafn af einu litlu landi er liggur í þeirri nýju Spanía …“
„… hvers vegna læknirnum hlýtur þeim og oft til hjálpar að koma.“
„60. Heroclítus og Democrítus.“
„Þessir tveir hafa verið sérdeilis hrósverðir heimspekingar …“
„… en að hann hafi hlegið finnst þar hvörgi.“
„61. Það Virgilíus skrifar og diktar um þann mikla kappa Æneam.“
„Líka sem Hómerus hefur samanskrifað eina bók …“
„… eru komnir eftirkomandi stjórnarherrar í Ítalía.“
„62. Um Trójæ undirgang og tréhestinn.“
„Þegar Trója hafði í samfelld 10 ár verið umsetin …“
„… tæki hestinn inn til sín með hátíðlegri guðrækni …“
Niðurlag vantar. Einnig vantar sögu 63 og framan af sögu 64.
„… en jafnvel þótt þessi hestur væri svo vænn og fallegur …“
„… Oft er galli á gjöf Njarðar.“
Upphaf vantar.
„65. Það undarlega dýr Sphinx, hvörs dulmæli Oedipus útlagði.“
„Hjá Thebæ borg í Grikklandi var forðum eitt mjög undarlegt og ljótt dýr …“
„… Maður er eg en ekki guð.“
„66. Bóndans Furii Cresini iðni og forsvar.“
„Skáldið Virgilíus hefur vel og víslega mælt er hann svo til orðs tekur …“
„… var hann af dómendum laus látinn og frídæmdur. Iðnin eykur alla ment.“
„67. Um Sírenes og þeirra sæta söng fyrir hverjum Ulysses mátti vara sig.“
„Þau spíssfyndugu fornskáld hafa með aðskiljanlegum uppáfinndingum og dæmisögum …“
„… að vellystin og óhóf sem enn ei getur skaðað mann.“
„68. Hvörnin Salurus áminnti sína 80 syni til samheldis.“
„Samlyndið er ein með þeim ypparlegustu dyggðum og mannkostum …“
„… Tekst þegar tveir vilja.“
„69. Um hrafninn sem heilsaði Augusto keisara í Latínu.“
„Það latínska máltæki Oleum et oper am perdit …“
„… Ekki fer allt sem ætlað er.“
„70. Tala og útmálan guða fornskáldanna.“
„Þeir gömlu heiðingjar, sérdeilis þau gömlu skáld …“
„… hafi gjört þá fyrstu manneskju.“
„Gyðjur eður guðynjur heiðingja“
„Þar nú eru taldir nokkrir af guðum heiðingja …“
„… guðynja yfir jurtum og blómstrum jarðarinnar.“
Þessi póstur er ekki númeraður, e.t.v. undirkafli 70.
„71. Undirjarðar guðir og gyðjur.“
„Fornskáld dikta að þær gyðjur heiti parcæ …“
„… og þessum kvölum linnar aldrei.“
„72. Galdranornin Circe.“
„Circe hefur verið útfarin og alþekkt galdranorn …“
„… þar til hann kæmi til skips aftur.“
„73. Jason og Medía“
„Jason var forðum daga einn ungur eðalmaður í Grikklandi …“
„… Ótryggðin fær oftast ill laun.“
„74. Dæmisaga Ovidii um næturgalann.“
„Pandíon kóngur í Aþenuborg átti tvær dætur …“
„… Upp komast ráð um síðir.“
„75. Þrennslags dans spartanískra“
„Það var forn vani í Sparta …“
„… og verða þeim líkir að hefð og manndáðum.“
„76. Hversu lukkulegir kóngarnir séu.“
„Að kóngar og stórir pótintátar séu ei svo lukkulegir …“
„… sorg og háska undirorpnir.“
„77. Um segulsteininn og demantinn.“
„Í náttúrunni eru margir undarlegir hlutir …“
„… er alteins góður og hann áður var.“
„78. Hörpuslagarinn Aríon.“
„Þessi Aríon var einn hrósverður og stásslegur hörpuslagari …“
„… Sækir hvör það sáir hann.“
„79. Argus með hundrað augum.“
„Sökum þess að sá guð Júpíter …“
„… Oft verður á fyrir svinnum.“
„80. Mídas kóngur með asnaeyrun.“
„Mídas kóngur hefur verið ríkastur allra manna á þeirri tíð …“
„… Ef einn þegði væri hann ei heimskur haldinn.“
„81. Eridis gullepli.“
„Forðum daga héldu tvær ungar persónur …“
„… að kalla sérhvað sem óeiningafrís epli Eridis.“
„82. Margfætlan og Proteus.“
„Á meðal fiskanna hefur þar einn fundist …“
„… er menn geta ei varast eður útséð.“
„83. Orðtækið Omnem lapidem movere.“
„Þegar Xerxes kóngur fór með her á hendur …“
„… og láta ekkert hjá líða það með þarf.“
„84. Grifffuglinn og rukkfuglinn.“
„Staðurinn Rostock hefur fyrir vopn einn griff …“
„… þaðan með sínum skipum ei ólíkt og vængjum.“
„85. Viðhöndlan Furii Camilli við einn ótrúan skólameistara.“
„Sá hrósverði og nafnfrægi kappi Furíus Camillus …“
„… hvað og skeði.“
„86. Sólon og Cræsus.“
„Sólon sem var einn af þeim vísu Grikkjum …“
„… svo hann skyldi þar lífið láta.“
Ellefu kver.
Ein hönd. Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Sums staðar örlítið pennaflúr undir griporðum (sjá t.d. bl. 8v-9r.