Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,K,12

Vitnisburðarbréf

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-1v)
Vitnisburðarbréf
Upphaf

Það meðkenni ég undirskrifaður / að ég var sendur inn á land að setja haustfólkið í vertíðarlokin með copmagnisins skip / og tvö önnur voru í sömu ferð …

Athugasemd

Vitnisburður Sigurðar Sölmundssonar um að hann hafi lent í vandræðum með skip sem festust uppi á sandi og hafi hann keypt fólkinu sem var þar fast með honum mat en umboðsmaðurinn Hans Christianson Rafn hafi ekkert viljað borga. Bréfið er dagsett 29. maí 1704.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
Eitt blað (214 mm x 167 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi ca. 21.

Ástand
Ástand gott.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Sigurður Sölmundsson, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Íslandi árið 1704.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 17. maí 2018.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn