Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,K,7

Jarðakaupabréf

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

(1r)
Jarðakaupabréf
Upphaf

Kiendis jeg underskreven Christophr Jenssen fuldmegtig i Westmanöe at have soldt og afhendt fra mig og mine arvinger til erlige og forstandige unge karl Gisle Ollafssen …

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi þar sem sagt Christoffer Jensen selur Gísla Ólafssyni jarðir, dags. 10. maí 1703.

Hákon Hannesson og Þórður Þórðarson votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 15. júní 1704.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki: fangamark IB (IS5000-DIF-LXXVI-K7). Stærð: 14 x 25 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 28 mm.

    Notað frá 1703 til 1704.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (215 mm x 165 mm). Síður 2r-2v eru auðar.
Umbrot

  • Eindálka.
  • Línufjöldi ca. 23.

Ástand
Ástand gott.
Skrifarar og skrift
Ein hönd auk undirskrifta.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skrifað á Íslandi árið 1703.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 22. maí 2018.
  • ÞÓS skráði 16. júlí 2020.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 14. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn