„Jeg umser Hr Lofter og tilsieger Ormer Jortssen paa hans kongl. maj.ts vegne en jord her paa Westmandöe kaldis …“
Afrit af jarðakaupabréfi Hans Christensen, dags. 13. ágúst 1694. Ólafur Árnason og Sigurður Sölmundsson votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 29. maí 1704.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Blaðið er í umslagi. Framan á það er ritað með hendi Árna Magnússonar: „Document ur Vestmannaeyum 1704.“ Með yngri hendi er ritað „AM. 919, 4to“ og með annarri hendi „Fasc. lxxvi. K.1-21.“ Innsíður og baksíða handritsins eru auðar.