„Efter fuldmagt af den høyædele og welbarne herre, herr Hinrich Bielche til Elling gaard Ridder kongl. Maijst. geheime Raad Rixs Admiral president udi …“
Afrit þriggja bréfa sem fjalla um sölu jarðarinnar Hólmakots í Borgarfjarðarsýslu. Séra Þorkell Arngímsson kaupir jörðina fyrir hönd séra Jóns Ólafssonar af Ólafi Jónssyni Klow, fulltrúa landfógeta, dags. 8. júní 1677. Bréf um að séra Þorkell hafi greitt Ólafi fyrir jörðina er dagsett 9. júlí 1677. Sigurður Finnsson, Þorvaldur Finnsson, Árni Hannesson og Bjarni Pétursson votta að rétt sé eftir frumbréfi skrifað, dags. 1. júlí 1703. Á 2v er utanáskriftin: „Eignarskjöl séra Jóns Eyjólfssonar yngra í Hvammi.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað í 1703.
Mótmerki 2: fangamark, í vinnslu (IS5000-DIF-LXXVI-J1_2-wm1). Stærð: 14 x 48 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 29 mm.
Notað í 1703.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Með tvíblöðungnum fylgir annað smærra blað (256x200 mm) sem virðist hafa verið notað sem umslag utan um annað ótengt bréf. Á það er ritað, að því er virðist með hendi Árna Magnússonar: „Eignarskipti á engjum og úthögum Geitabergs 1596“.