„Í nafni heilagrar þrenningar framfór og var auglýstur og staðfestur slíkur gjörningur og skilmáli til löglegs ektaskapar undirbúnings …“
Afrit af kaupmála milli Ásbjarnar Guðmundssonar og Orms Vigfússonar, sem gefur Ásbirni dóttur sína Guðrúnu, dags. 2. júní 1649. Fyrir neðan afritið votta Páll Bjarnarson og Halldór Guðmundsson að rétt hafi verið eftir frumbréfi ritað í Ólafsvík þann 18. maí 1674.
„Wi denn hellige treføldigheds Nafnn Amen: Denn ypperlige …“
Afrit af gjafabréfi Ásbjarnar Guðmundssonar til Friðriks þriðja Danakonungs, dags. 19. nóvember 1663. Með hendi Jóns Steinþórssonar. Með fylgir seðill, merktur með blýanti „ad LXXVI G2“, þar sem Sigurður Jónsson vottar að rétt sé ritað eftir frumbréfi þann 23. maí 1690. Fyrir neðan það vottar Bent(?) Lauritzson það sama, dags. 27. maí 1690 og loks vottar Brynjólfur Erlingsson það sama, sama dag.
„Eftir því að sálugi Ásbjörn Guðmundsson er nú fyrir tímanlegan dauða afgenginn, og af drottni burt kallaður af þessari veröldu þann 16. decembris eftir sínum guðdómlegum vilja …“
Eignaskrá, frumbréf, undirritað af Jakobi Benediktssyni, Guðrúnu Ormsdóttur, Sigurði Halldórssyni, Þorgils Jónssyni og fleirum, dags. 22. desember 1673. Á 2v er utanáskriftin „Guðrún Ormsdóttir udi Ólafsvík og langinde SC: Ásbjörn Guðmundsson anno 1673“.
„Anno 1674 þann 7 febrúarí kom æruverðugur Jakob Benediktsson konglig majestats sýslumaður yfir Snæfellsnesssýslu í Ólafsvík að sjá og yfirskoða …“
Skrá yfir eignir Ásbjarnar Guðmundssonar sem Jakob Benediktsson sýslumaður og fleiri menn meta, dags. 7. febrúar 1674. Undir votta Jakob, Guðrún Ormsdóttir og þrír aðrir menn. Á 2r er annar listi svipaðs eðlis, dags. 19. maí 1674. Neðst á 2r er ritað með fjólubláum blýanti, sennilega af Guðmundi Þorlákssyni: „NB. Þetta bréfið hefur efl. verið skr. fyrst. (G.Þ.)“
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1673 til 1690.
Vatnsmerki 2 (afbrigði) (IS5000-DIF-LXXVI-G1-4_5), bl. 5. Stærð: 88 x 47 mm.
Notað frá 1673 til 1690.
Notað frá 1673 til 1690.
Notað frá 1673 til 1690.
I. G,1 (1r): Óþekktur skrifari, léttiskrift.
II. G,1 (1r): Sigurður Jónsson, fljótaskrift.
III. G,2 (1r-2r): Jón Steinþórsson, fljótaskrift.
IV. G,2 ad (1r): Sigurður Jónsson, léttiskrift.
V. G,2 ad (1r): Bent Lauritzson, léttiskrift.
VI. G,2 ad (1r): Brynjólfur Erlingsson, léttiskrift.
VII. G,3 (1r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
VIII. G,4 (1r-v): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
IX. G,4 (2r): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Með fylgir blað, brotið í tvennt, sem notað hefur verið sem umslag utan um hin blöðin. Á það er ritað með hendi Árna Magnússonar: „Documenter om Asbiørn i Olafsviig. Fra Jon Jonsson a lysehole.“
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.