Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXVI,C3

Eignaskrá Guðmundar Arasonar

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-4r)
Eignaskrá Guðmundar Arasonar
Upphaf

… vetrir og þre … f eld … og 12 veturgamlir … 25 …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn IV, nr. 725, bls. 683-694.

Athugasemd

Afrit af eignaskrá Guðmundar ríka Arasonar. Brot.

2 (4r-5r)
Dómur um arf dóttur Guðmundar Arasonar ríka eftir móður sína Helgu Þorleifsdóttur
Upphaf

Anno 1501 ár miðkudaginn næstan eftir Pétursmessu og Páls á almennilegu Öxarárþingi …

Notaskrá

Íslenzkt fornbréfasafn VII, nr. 549, bls. 569-572.

Athugasemd

Afrit af dómi þar sem Solveig Guðmundardóttir er dæmd löglegur erfingi eftir Helgu Þorleifsdóttur móður sína. „Lök og stytt afskrift“ segir í Íslenzku fornbréfasafni.

Efnisorð
3 (5r-5v)
Fátt eitt um kónga yfir Danmörk og Noregi
Upphaf

Anno 1400 var Eiríkur af Pommeren kóngur yfir Noregsríki og hafði þó dorttning Margrét …

Athugasemd

Stuttur annáll þar sem listaðir eru nokkrir atburðir á 15. öld. Í lokin er sagt frá Eggert Eggertssyni riddara, syni hans Hannesi Eggertssyni og sonarsyni, Eggert Hannessyni

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír.

  • Aðalmerki: dárahöfuð með Hermes krossi og 3 hringir (brot) (IS5000-DIF-LXXVI-C3_4, sjá líka IS5000-DIF-LXXVI-C3_5), bl. 4, 5. Stærð: ? x ? fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 64 mm.

    Notað frá 1650 til 1690.

Blaðfjöldi
Fimm blöð (202 mm x 160 mm).
Umbrot

  • Ein- og tvídálka.
  • Línufjöldi er ca 29.

Ástand
Fremsta blað er nokkuð skemmt, sérstaklega efri helmingur 1r, sem er að hluta til ólæsilegur.
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari. Fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi ca 1670.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 23. mars 2017.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 13. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill:
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Þorkelsson
Umfang: 4
Titill:
Ritstjóri / Útgefandi: Jón Þorkelsson
Umfang: 7
Lýsigögn
×

Lýsigögn