„… vetrir og þre … f eld … og 12 veturgamlir … 25 …“
Íslenzkt fornbréfasafn IV, nr. 725, bls. 683-694.
Afrit af eignaskrá Guðmundar ríka Arasonar. Brot.
„Anno 1501 ár miðkudaginn næstan eftir Pétursmessu og Páls á almennilegu Öxarárþingi …“
Íslenzkt fornbréfasafn VII, nr. 549, bls. 569-572.
Afrit af dómi þar sem Solveig Guðmundardóttir er dæmd löglegur erfingi eftir Helgu Þorleifsdóttur móður sína. „Lök og stytt afskrift“ segir í Íslenzku fornbréfasafni.
„Anno 1400 var Eiríkur af Pommeren kóngur yfir Noregsríki og hafði þó dorttning Margrét …“
Stuttur annáll þar sem listaðir eru nokkrir atburðir á 15. öld. Í lokin er sagt frá Eggert Eggertssyni riddara, syni hans Hannesi Eggertssyni og sonarsyni, Eggert Hannessyni
Pappír.
Notað frá 1650 til 1690.
Óþekktur skrifari. Fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.