„… að landsdrottinn mætti með lögum fráskilja …“
Afrit af niðurlagi (14 línur yfirstrikaðar) Landvarnardóms Hákonar Björnssonar, umboðsmanns í Rangárþingi. Á spássíu við efnisgreinina stendur: Úr Landvar(ð)nardómi 1583 eða 1587.
„Anno 1694 þann 2. júní að Heiði í Mýrdal …“
Afrit af Skipapósti Ólafs Einarssonar sýslumanns. Á eftir fer vitnisburður um að rétt sé skrifað eftir Alþingisbókinni 1695, 45. pósti. Undirritaður af Sigurði Björnssyni m.e.h. Neðst stendur: Þetta fyrrskrifað að vera rétt útkópierað meðkennir undirskrifaður Ólafur Einarsson m.e.h.
Pappír með vatnsmerkjum.
Mótmerki: fangamark DI (IS5000-DIF-LXXV-60-wm1). Stærð: 13 x 22 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 24 mm.
Notað frá 1694 til 1703.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.