„Ég undirskrifaður Sigmundur Pálsson meðkenni með þessum mínum vitnisburði, að þá sáluga Ásgrímur Sigurðsson, sem hálft fjórða hundrað átti í jörðunni Höfn …“
Afrit af bréfi dags. 18. júní 1693, þar sem nokkrir menn gefa vitnisburði sína um að rekafjaran Kóngsvík tilheyri Skaftafellssýslu. Vitnisburður sama efnis undirritaður af Ísleifi Einarssyni sýslumanni, dags. 22. júní 1706. Á eftir bréfinu fer vitnisburður um að bréfið hafi verið lesið upp í lögréttu 22. júlí 1706. Vitnisburður um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi undirritaður af Ögmundi Ögmundssyni og Páli Jóhannssyni, dags. 23. júlí 1706.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað í 1706.
Óþekktur skrifari, blendingsskrift að mestu, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.