Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,52

Jarðakaupabréf

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

1 (1r-1v)
Jarðakaupabréf
Upphaf

Vi underskrefne Sal. Rigs Admiral Herre Hendrich Bielkes arfvinger …

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi dags. 15. mars 1688, þar sem erfingjar Henriks Bielke selja Christoffer Heideman jörðina Drangshlíð.

Á eftir bréfinu fer vitnisburður á íslensku um að það hafi verið lesið upp í Lögréttu 3. júlí 1688. Undir hann hafa upprunalega skrifað: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson.

2 (1v-2r)
Jarðakaupabréf fyrir Drangshlíð í Innri-Njarðvík
Upphaf

Jeg Christoffer Heideman Kongl. Majst Assessor udi Commercii Collegio …

Athugasemd

Afrit af jarðakaupabréfi dags. 23. júní 1693 þar sem Christoffer Heideman selur Þorkeli Jónssyni í Innri Njarðvík, jörðina Drangshlíð.

Vitnisburður á íslensku um að bréfið hafi verið lesið upp í Lögréttu 6. júlí 1693. Vitundarvottar eru hinir sömu og áður: Sigurður Björnsson, Magnús Jónsson og Árni Geirsson.

Vitnisburður á íslensku 14. júní 1703 um að rétt sé skrifað eftir frumbréfi. Undir skrifa Gísli Ólafsson og Halldór Ólafsson Innri Njarðvík m.e.h.

Vitnisburður um landskuld af Drangshlíð, dags. 26. júní 1703, undirritað af Þorkeli Jónssyni m.e.h.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki: í vinnslu (IS5000-DIF-LXXV-52). Stærð: 46 x 34 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 26 mm.

    Notað frá 1688 til 1703.

Blaðfjöldi
Tvíblöðungur (300 mm x 195 mm). Aftasta blaðsíðan auð.
Umbrot

  • Eindálka.

Ástand
Bleksmitun og blettir.
Skrifarar og skrift
Að mestu ein hönd, auk eiginhandarundirskrifta.

Með hendi Árna Geirssonar alþingisskrifara, fljótaskrift.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi á árunum 1688-1703.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu 27. nóvember 1996.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P5 11. október 2016.
  • EM uppfærði vatnsmerkin 12. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn