„Anno 1631 þann 10. dag novembris á Munkaþverá í Eyjafirði fór svo látandi kaup og gjörningur fram þessara herramanna á milli, Magnúsar bónda Björnssonar og Nikulásar Einarssonar …“
„… hvað allt vér undirskrifaðir vottum er hvorttveggja saman lásum í Skálholti þann 7. dag martii mánaðar anno Christi 1708.“
Afrit af jarðakaupabréfi dags. 10. nóvember 1631 þar sem Nikulás Einarsson selur Magnúsi bónda Björnssyni jörðina Reykjahlíð við Mývatn. Afritið er dagsett 7. mars 1708 Á eftir afritinu fer vitnisburður um að rétt sé eftir frumbréfinu skrifað. Það sé ritað á kálfsskinn með tveimur heilum hangandi innsiglum. Tekið er fram „31“ í ártalinu 1631 sé óljóst. Undirritað af Árna Magnússyni, Magnúsi Markússyni og Þórði Þórðarsyni.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1708.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.