„Það gjörum vér Jón Jónsson, Guðmundur Björnsson og Sveinn Bárðarson prestar góðum mönnum kunnugt með þessu voru opnu bréfi, að vér höfum séð og yfir lesið 2 kirkjunnar máldaga á Hólum …“
Skjalið er prentað í Íslenzku fornbréfasafni14, nr. 244, bls. s. 343.
Uppskrift af vitnisburðarbréfi Jóns Jónssonar, Guðmundar Björnssonar og Sveins Bárðarsonar um máldaga Höfðakirkju, einn frá 1395 og annan frá 1461. Vitnisburðarbréfið er dagsett 8. febrúar 1565. Uppskriftin mun vera gerð fyrir Árna Magnússon en á 2v er ritað: Þetta er skrifað eftir óundirskriftaðri og innsiglalausri kópíu á pappír, sem liggur á Höfða.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1690 til 1710.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1565.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.