Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,19

Kaupmálagjörningar Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur ; Íslandi

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-4r)
Kaupmálagjörningar Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur
Upphaf

Öllum mönnum þeim [sem] þetta bréf sjá eður heyra, senda Illugi Guðmundsson, Teitur Magnússon, Jón Loftsson, Jón Jónsson prestar …

Athugasemd

Uppskriftir fimm bréfa sem öll tengjast kaupmálagjörningi milli Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur.

Á 1r-1v er bréf Jóhanns Kristjáns Briems, prests í Hruna, stílað á Hið konunglega norræna fornfræðafélag þar sem Jóhann skrifar um bréfin og gefur félaginu þau.

Efni uppskriftanna: 1 (2r): Af kaupmálabréfi milli Páls Jónssonar frá Svalbarði (Staðarhóls-Páls) og Helgu Aradóttur lögmanns. 2 (2v): Af kaupmálagjörningi milli Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur. 3 (3r): Af kaupmálabréfi milli hinna sömu. 4 (3r): Staðfesting Helgu Aradóttur á kaupmála Elínar dóttur sinnar. 5 )3r-3v): Af alþingisdómi sex manna, að þeira dæma kaupmálabréf Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur fullgilt í alla staði.

Á 3v staðfesta Ólafur prestur Erlendsson, Halldór Ólafsson og Guðmundur Illugason að rétt sé eftir frumbréfum skrifað, dags. 19. júní 1605. Þar fyrir neðar eru leifar af þremur grænum vaxinnsiglum.

Eitt bréfanna (nr. 5) er prentað eftir annarri uppskrift í Alþingisbókum ÍslandsIII, bls. s. 136-137.

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Aðalmerki: skjaldarmerki með bókstaf R og kórónu (IS5000-DIF-LXXV-19). Stærð: 45 x 32 mm, fjarlægð á milli vatnslína á báðum megin vatnsmerkisins: 51 mm.

    Ekkert mótmerki.

    Notað í 1605.

Blaðfjöldi
Fjögur blöð (1 tvíblöðungur + 2 laus blöð) (334 mm x 205 mm). Bl. 4 er autt.
Skrifarar og skrift
Þrjár hendur.

I. (1r-1v): Jóhann Kristján Briem skrifari, sprettskrift.

II. (2r-3v): Óþekktur skrifari, blendingsskrift.

III. (3v): Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r auk ártalanna 1558/86/88/1605. Safnmarkið er einnig að finna á 2r.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Innsigli

Leifar af þremur grænum vaxinnsiglum.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi annars vegar árið 1605 (bl. 2 og 3) og hins vegar árið 1847 (bl. 1).
Ferill

Jóhann Briem í Hruna gaf Hinu konunglega norræna fornfræðafélagi bréfin árið 1847.

Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu á árinu 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 21. ágúst 2018. ÞÓS skráði 24. júlí 2020. EM uppfærði vatnsmerkin 8. júní 2023.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,19
  • Efnisorð
  • Fornbréf
    Kaupmálar
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn