„Öllum mönnum þeim [sem] þetta bréf sjá eður heyra, senda Illugi Guðmundsson, Teitur Magnússon, Jón Loftsson, Jón Jónsson prestar …“
Uppskriftir fimm bréfa sem öll tengjast kaupmálagjörningi milli Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur. Á 1r-1v er bréf Jóhanns Kristjáns Briems, prests í Hruna, stílað á Hið konunglega norræna fornfræðafélag þar sem Jóhann skrifar um bréfin og gefur félaginu þau. Efni uppskriftanna: 1 (2r): Af kaupmálabréfi milli Páls Jónssonar frá Svalbarði (Staðarhóls-Páls) og Helgu Aradóttur lögmanns. 2 (2v): Af kaupmálagjörningi milli Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur. 3 (3r): Af kaupmálabréfi milli hinna sömu. 4 (3r): Staðfesting Helgu Aradóttur á kaupmála Elínar dóttur sinnar. 5 )3r-3v): Af alþingisdómi sex manna, að þeira dæma kaupmálabréf Bjarnar Benediktssonar og Elínar Pálsdóttur fullgilt í alla staði. Á 3v staðfesta Ólafur prestur Erlendsson, Halldór Ólafsson og Guðmundur Illugason að rétt sé eftir frumbréfum skrifað, dags. 19. júní 1605. Þar fyrir neðar eru leifar af þremur grænum vaxinnsiglum. Eitt bréfanna (nr. 5) er prentað eftir annarri uppskrift í Alþingisbókum ÍslandsIII, bls. s. 136-137.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1605.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Leifar af þremur grænum vaxinnsiglum.
Jóhann Briem í Hruna gaf Hinu konunglega norræna fornfræðafélagi bréfin árið 1847.