Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,18

Heimreiðarskrá, dómur og konungsbréf ; Íslandi

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

(1r-4r)
Heimreiðarskrá, dómur og konungsbréf
Upphaf

Christen mett Gudz naade …

Athugasemd

Uppskrift af bréfum Kristján konungs III. til Daða bónda Guðmundssonar og Péturs bónda Eianrssonar um að þeir sé Lauritz Múla hjálplegir að fanga Jón Arason, auk annars efnis.

Á 1v er ritað: Heimreiðarskrá biskups Jóns Arasonar til Sauðafells, anno 1550. Af Daða til samans skrifuð. Item einn dómur og þrjú kóngsbréf.

Nöfn sem koma fyrir: Lárus (Laurentius/Lauritz) Mule, Daði Guðmundsson, Pétur Einarsson, Jón Arason, Ormur Stullason, Erlingur Þorvaldsson, Marteinn Ómarsson.

Á 4v er textabútur sem búið er að yfirstrika.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
Fjögur blöð (1 tvíblöðungur + 2 laus blöð) (161 mm x 97 mm). Bl. 4 er minna (67 mm x 96 mm)
Skrifarar og skrift
Ein hönd.

Óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1550-52.

Á 1r er ritað með hendi Árna Magnússonar: Aftan við léttvægt exemplar af Sauðafellsreið með Snóksdalsdómi.

Á spássíu 3r er dagsetningin 9/4 með yngri hendi og á spássíu 3v 12/3 með sömu hendi. Neðst á bl. 4r er ritað DI, XI, Nr. 641.

Band

Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.

Fylgigögn

Lítið, ungt umslag fylgir sem á er ritað 1550-52 og NB Þetta er ónýtt.

Uppruni og ferill

Uppruni
Skjalið var skrifað á Íslandi ca. 1670-1730.
Aðföng
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við skjalinu á árinu 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BGÁ skráði samkvæmt reglum TEIP5 21. ágúst 2018.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×
  • Land
  • Ísland
  • Staður
  • Reykjavík
  • Stofnun
  • Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Vörsludeild
  • Handritasvið
  • Safn
  • Íslensk fornbréf Árna Magnússonar
  • Safnmark
  • AM Dipl. Isl. Fasc. LXXV,18
  • Efnisorð
  • Fornbréf
  • XML
  • Opna XML færslu  
  • PDF í einni heild
  • UpplýsingarUpplýsingar
  • Athugasemdir
  • Gera athugasemdir við handrit  

Lýsigögn