„Vér Jón með guðs náð biskup á Hólum gjörum góðum mönnum kunnugt með þessu voru opnu bréfi, að vér höfum unnt Magnúsi djákna Jónssyni prófastsdæmi millum Hrauns á Skaga og Hofs í Dölum með soddan skildaga …“
Uppskrift af bréfi þar sem Jón Arason biskup á Hólum veitir Magnúsi djákna Jónssyni (syni sínum) prófastsdæmi milli Hrauns á Skaga og Hofs í Dölum, en Gísli prestur Sigurðsson fari með prófastsdæmið, dags. 26. ágúst 1528. Skjalið er prentað eftir frumriti í Íslenzku fornbréfasafniIX, nr. 386, bls. 465-466.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið skrifað efst á bl. 1r auk ártalsins 1528.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.