„Wi Gauto met Guds naad, Erchebiskopp, Nidaros ock pavelix sætis legatus sendher ollum them gode monnum som halvkirker …“
Bréf Gauta erkibiskups í Niðarósi til manna í Hólabiskupsdæmi, að allir þeir er vörslur hafi á hálfkirkjum sé skyldir að gera biskupi reikningsskap af þeim. Dagsett 22. september 1481. Skjalið er prentað eftir frumriti í Íslenzku fornbréfasafniVI, nr. 364, bls. 402-404.
Pappír með vatnsmerkjum.
Notað frá 1701 til 1725.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Safnmarkið skrifað á spássíu á bl. 1r auk ártalsins 1481. Efst á blaðið hefur verið bætt við með yngri hendi: MSteph. 78 Fol. p. 247-249 og AM. Fasc. XXVI. 28. en síðarnefnda safnmarkið sett innan sviga og yfirstrikað.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.