„Anno 1774 þann 16. september að Brjánslæk á Barðaströnd …“
„… sama stað, ári og degi sem fyrr segir. Guðbrandur Sigurðsson, Hjálmar Þorsteinsson, undir skrifa Ólafur Jónsson, Bjarni Eiríksson.“
„Anno 1776 þann 30. septembris að Prestsbakka við Hrútafjörð …“
„… vor signet, á sama ári, degi og stað sem upphaflega greinir. Jón Sveinsson, Hjálmar Þorsteinsson. Undirskrifum vér: Eyjólfur Sturluson, Ólafur Magnússon.“
Skrifað á Prestbakka við Hrútafjörð 1776.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Safnmarkið er skrifað á bl. 1r.
Dagsetning (1774) er skrifuð með blýanti efst á hægra horn bl. 1v.
Spássíugrein á 1v frá 1776.
Spássíugrein á 1r frá 1778.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Átta vel varðveitt innsigli: fjögur á 1v og fjögur á 1r.
Bréfið var skrifað á Brjánslæk á Barðaströnd 16. september 1774.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.