„Í Guðs nafni, amen. Anno 1647 þann 14. martí að Súrbæ á Kjalarnesi, á almennilegum kirkjusamfundi …“
Þrettán menn í Saurbæjarkirkjusókn á Kjalarnesi kvitta upp á góða hegðan og breytni séra Jóns Oddssonar, dags. 14. mars 1647 að Saurbæ.
Gert hefur verið við rifur og göt. Texti er máður í brotum.
Skrifari er sennilega Jón Oddsson, léttiskrift.
Safnmarkið er skrifað á bl. 1r.
Ártal ritað með blýanti á bl. 1v.
Umbúðir og askja frá 1997 eða fyrr.
Bréfið var skrifað á Íslandi 1647.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1997 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.