„Það kennust vér Jón Einarsson, Skúli Einarsson og Brynjólfur Árnason prestur að vér vorum það viðstaddir í stofunni í Bólstaðarhlíð …“
„… skrifað í sama stað 29. dag januarii anno 1600.“
Vitnisburður um að Magnús bóndi Björnsson og kona hans gáfu eftir sinn hluta í jörð (líklega Bólstaðarhlíð í Svartárdal) til handa syni sínum séra Jóni Magnússyni. Bréfið er undirritað og innsiglað af þremur mönnum: Jóni Einarssyni, Skúla Einarssyni og Brynjólfi Árnasyni í Bólstaðarhlíð árið 1600. Aftan við bréfið er vitnisburður Bjarna Ólafssonar um að hann hafi verið viðstaddur þennan gjörning, skrifaður þann vi. dag februari á Bergsstöðum í Svartárdal. Ofanlínu stendur ártalið 1500 en ætti að vera 1600.
Pappír með vatnsmerkjum.
Ekkert mótmerki.
Notað í 1600.
Óþekktur skrifari, léttiskrift.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Þrjú innsigli, frá Skúla Einarssyni, Brynjólfi Árnasyni og Jóni Einarssyni.
Bréfið var skrifað á Íslandi 29. janúar 1600.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.