Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM Dipl. Isl. Fasc. LXXIV,6

Vitnisburðarbréf frá Eggerti Hannessyni ; Ísland

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-v)
Vitnisburðarbréf frá Eggerti Hannessyni
Upphaf

Meðkenni eg Eggert Hannesson með þessari minni handskrift það eg hefi í útlöndum alla þá peninga meðtekið sem Jón bóndi BjörnssonFlatey átti mér að gjalda …

Niðurlag

… til sanninda hér um þrykki eg mitt signet neðan á þetta kvittunarbréf skrifað í Bæ á Rauðasandi þann 7. dag augusti anno 1580.

Athugasemd

Kvittun fyrir móttöku greiðslu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
Eitt blað (171 mm x 103 mm).
Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 73 mm x 94 mm.
  • Línufjöldi 11.

Ástand
Bréfið er snjáð, einkum þar sem það hefur verið brotið saman.
Skrifarar og skrift

Eggert Hannesson, léttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Dagsetning bréfsins er skrifuð með blýanti efst í hægra horni bl. 1r.

Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.

Band

Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).

Innsigli

Brotið hefur verið inná hægra horn blaðsins að neðan, yfir innsigli.

Uppruni og ferill

Uppruni

Bréfið var skrifað á Íslandi 1580.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • JH skráði samkvæmt reglum TEIP5 25. júlí 2017.
  • ÞS las yfir og jók við 18. september 2017.

Viðgerðarsaga

Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.

Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.

Myndir af handritinu

  • Svarthvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Lýsigögn
×

Lýsigögn