„Meðkenni eg Eggert Hannesson með þessari minni handskrift það eg hefi í útlöndum alla þá peninga meðtekið sem Jón bóndi Björnsson að Flatey átti mér að gjalda … “
„… til sanninda hér um þrykki eg mitt signet neðan á þetta kvittunarbréf skrifað í Bæ á Rauðasandi þann 7. dag augusti anno 1580.“
Kvittun fyrir móttöku greiðslu.
Eggert Hannesson, léttiskrift.
Dagsetning bréfsins er skrifuð með blýanti efst í hægra horni bl. 1r.
Safnmarkið er skrifað efst á bl. 1r.
Umbúðir og askja frá 1996 eða fyrr (290 mm x 365 mm x 9 mm).
Brotið hefur verið inná hægra horn blaðsins að neðan, yfir innsigli.
Bréfið var skrifað á Íslandi 1580.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við bréfinu á árinu 1996 eða 1997.
Gert var við bréfið og búið um það í nýjum umbúðum af forvörðum á viðgerðarstofu Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn árið 1996 eða fyrr.
Eldri umbúðir, einföld mappa úr brúnum pappír, liggur með í öskjunni.